Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Profile...

  • Stađur: Aalborg
  • Heimilisfang: Blegkilde Allé 4 a, st.
  • Atvinna: Nemi viđ Uni Aalborg - sundhedsteknologi
  • Hjúskaparstađa: Laufey :)

Me, Myself and I

Nafn: Jón Ingi B.
Rasskelltur fyrst: Ţann 18. sept. 1987
e-mail: joningib-at-gmail.com
msn: smelkur-at-hotmail.com

Fyrsta blađur: 4.4.2006

Myspace

Leit

SVOO STUTT!!

15. desember 2008 klukkan 21:13
-LOKSINS-
Tongue out
Við skiluðum stóru skýrslunni okkar í dag... úff MIKILL léttir. 2 mánuðum, mörgum vinnuklukkutímum í skólanum, mörgum dönskuþýðingum og 69 síðum síðar....skiluðum við því inn í dag.
Held að ég hafi aldrei verið eins stoltur með verkefni sem ég hef unnið að í skólanum eins og þetta.

Núna er það bara að skrifa process analyse sem á að vera 5-10 síður um það hvernig gekk að vinna þetta verkefni í hópnum og hvernig við gerðum það. Erum komin með 6 síður nú þegar og klárum þetta örugglega á morgunn og skilum því. Þannig að á miðvikudaginn verð ég kominn í jólafrí.

SVOOOOO ekki á morgunn ekki hinn heldur fimmtudaginn kem ég svo loksins heim yfir jólin. Mér hefur aldrei hlakkað jafn mikið til á ævinni að stíga upp í flugvél eins og núna.Laughing
Það er orðið frekar svekkjandi að vera bara hérna einn, allt út í jóladóti út um ALLT í bænum, sykruð epli, kandífloss, belgískar vöfflur, jólasveinar, tónlistarfólk, litlir jólakofar með jólavörum og gjöfum, sykurbrenndar möndlur.... vá ég gæti haldi endalaust áfram.
Samt sem áður er ekkert jólalegt hérna hjá mér í íbúðinni, var ekki alveg að tíma að eyða pening í skraut bara fyrir sjálfan mig Tongue out

Ætlaði að fara í síðasta skipti niðrí Fakta í dag og kaupa brauð og mjólk  áður en ég færi heim og nýta mér dósirnar sem að ég var með hérna heima. Dæla þeim í endurvinnsluvélina og nota peninginn af því til að kaupa matinn Laughing haha vá en vélin pípti bara á mig og ég ýtti bara aðeins of fljótt á einhverja takka til að þagga niðrí henni og fékk svo bara út miða sem stóð á: "Tak for din beløb til Unicef"...... great ég gaf víst peninginn sem ég ætlaði að nota... svo ég neyddist til að borga fyrir mjólkina mína og brauðið.. hehe

ANYWAY... hlakka svo til föstudagsins!! Laufey að útskrifast og svaka útskriftarpartý hjá stelpunum um kvöldið.
Get ekki lýst því hvað ég er stoltur af henni Laufey minni að vera komin með húfuna, búin að standa sig frábærlega á þessari önn! Laughing

Jæja næst þegar ég skrifa hérna verður líklegast bara eftir áramót þegar við verðum komin hingað saman hjónakornin í litlu kitruna okkar....

Hlakka til að sjá alla!
Hilsen fra DK
Jón Ingi Bergsteinsson

Aaaaalveg ađ koma

09. desember 2008 klukkan 13:36
Ég er með svo mikinn fiðring í maganum yfir því að koma heim í næstu viku að ég er að deyja. Það eina sem ég geri núna á daginn er að mæta í skólann, vinna í verkefninu, fara heim og halda áfram að vinna í verkefninu og lesa svo yfir.
Þess á milli er ég að chilla með National Geographic eða Discovery upp í sófa...Þeir hafa reynst mér rosalega góðir vinir eftir að ég flutti.
Verkefnið er að verða búið og það eina sem að er eiginlega eftir er að skrifa niðurstöður á verkefninu (discussion and conclusion) og lesa það allt yfir, leiðrétta og setja það flott upp.

Gerði ekkert síðustu helgi nema að vera upp í skóla og hanga heima... bíst ekki við neinu öðru núna um helgina.

Það eru bara 9 dagar, rúm vika....get ekki beðið eftir að komast upp í almennilegt rúm, er orðinn frekar þreyttur í bakinu á að sofa í sófanum í rúmar 2 vikur. Þó að sófinn sé góður þá er þetta ekki upp á marga fiska til að sofa í lengi.

Hef ekki mikið annað að segja en mig hlakkar bara rosalega til að sjá alla í næstu viku! Ótrúlegt, næsta sunnudag er 3. í aðventu Surprised

Hilsen!
Jón Ingi Bergsteinsson

Fullveldisdagurinn

01. desember 2008 klukkan 14:00
Á hverju ári á maður aldrei að vera jafn stoltur að því að vera íslendingur eins og í dag.
En hahaha vá ég held að ég hafi aldrei verið jafn svekktur að koma frá Íslandi eins og ég er í dag.
Alþingi hvað? Íslenska krónan hvað? Íslensk nei takk.... úff

Annars til hamingju með daginn... ef það er eitthvað til að óska til hamingju með. Vona að það séu brjáluð mótmæli heima í dag.

Allt ágætt að frétta annars. Bara mikið að gera í skólanum um þessar mundir. Kíkti reyndar á julefrokost sem var haldið fyrir alla heilbrigðisfræðinema í skólanum á föstudaginn. Það var rosa fínt, nema það að alkóhólið steig mér aðeins til höfuðs, sérstaklega þá Aalborg Akavit, sem er danskt snaps.... vibbi. Eyddi nær öllum laugardeginum fyrir framan sjónvarpið og gerði ekki neitt, sem var líka bara fínt.
Ætla mér ekki að drekka neitt þangað til að ég kem aftur heim, búinn að vera svo hræðilega þunnur alltaf hérna úti og það er ekki mikið gaman að vera einn þunnur hérna meðan að allir bestu vinir manns eru heima og eru alltaf til í að kíkja á American style eða KFC eftir fyllerí, úff vantar alveg stælinn hingað út. Plús þá kostar það líka alltaf að vera á fylleríi Tongue out

En ég ætla að segja ykkur frá enn einum hamförum unga stúdentsins hérna úti. Ég ætlaði að vera smá jólalegur á föstudaginn og fara í rauða skyrtu sem að ég á. En en sá svo að ég hafði greinilega ekki strauað hana áður en ég flutti hingað yfir á Blegkilde Allé. Ég tók mig nefnilega til 2 vikum áður en ég flutti og strauaði allar skyrturnar mínar, nema þessa greinilega, því að Nikolaj gat lánað mér straubretti. Svo ég þurfti að reyna að redda straubretti á föstudaginn en ég týmdi auðvitað ekki að skjótast einhvert og kaupa það, bíð bara með það þangað til seinna.... Svo ég fór að leita í "öllu" dótinu mínu til að finna eitthvað sem ég gæti notað sem straubretti. Reddaði mér svo loksins bara með því að draga út lenginguna á eldhúsborðinu og leggja gamalt koddaver á það og strauaði. Virkaði svona glimrandi vel.

Haha já vá svo misskildi ég einhvern pakkaleik sem var á jólahlaðborðinu. Maður átti að kaupa eitthvað fyrir 10 kr. og pakka því inn og svo átti að vera pakkaleikur. Ég spurði krakkana hvort að þetta ætti að vera svona VEL pakkað inn og svo ætti að rífa pakkana í sundur með tónlist og eitthvað og sá sem að næði að opnann myndi vinna...svona eins og maður gerði í 10. ára afmælum... crist hehe ok

AAAllavega. Þau sögðu JÁ við mig. Svo ég keypti einhvern hræ ódýran bolla og pakkaði honum inn í massavís af dagblöðum og tímaritum sem að ég tók að heiman, btw. þá kemur 1000 sinnum meira af ruslpósti hérna út í DK en á einum mánuði heima. Teipaði svo yfir allt saman og wola.... ready. En svo þegar ég mætti voru allir bara með venjulega pakka.. aha frekar fyndið. Síðan gekk leikurinn bara út á það að láta tening ganga á milli manna og þegar þú fékkst 6 máttirðu fara yfir á annað borð og ræna pakka. Svo þegar leikurinn var búinn enduðu allir með pakka og máttu eigann. En ég týndi víst minni rusl gjöf.

Frekar skömmustulegur með pakkann....

Með pakkann

Í dag eru svo ákkúrat 2 vikur þangað til að við þurfum að skila verkefninu okkar. erum á fullu að skrifa og setja það saman. Verður tæpar 80 síður allt í allt þegar þetta er komið.... heavy stuff sko.

Svo eru líka bara 2 vikur og 2 og hálfur 2 dagur þangað til að ég kem aftur heim, eða í þar næstu viku Laughing datt aldrei í hug að ég gæti saknað þess svona mikið að vera frá öllum.... þetta er erfiðara en það virðist fyrst... MIKLU erfiðara.

Tékkiði svo á myspaceinu hjá Dikta og hlustið á jólalagið sem að þeir tóku upp í fyrra, nóttin var sú ágæt ein. Æðislegt lag! Þetta og Helgi Björns - Ef ég nenni, bestu jólalögin!

Get ekki beðið eftir því að hitta alla eftir 17 daga!!!

Hilsen...

Jón Ingi Bergsteinsson

Ísldaenska

25. nóvember 2008 klukkan 16:13
Úff, held að þetta sé einn af fyrstu dögunum þar sem að ég er ekki að drepast úr þreytu eða hausverk á því að vera hugsa á 3 tungumálum og reyna að skilja dönskuna allan daginn.

Mætti upp í skóla í morgunn til að vinna að verkefninu með Rasmus sem er með mér í hóp. Gekk ágætlega aðallega að fara yfir það sem ég er búinn að skrifa á dönsku....sem er ekki upp á marga góða fiska.

Annars held ég að ég geti ekki verið sáttari með lífið hérna úti miðað við aðstæður hjá mér núna :) fór um helgina í Bilka og keypti helling af dóti í eldhúsið og íbúðina.... kostaði smá en það er alltaf dýrt að byrja.

Það hefur ekki liðið sú vika hérna úti þar sem að ég hugsa ekki hlýtt til bílsins míns sem að situr bara heima á rassgatinu... ég sakna þess svo að keyra... guð minn góður! Það eru sko þó nokkrar hallærislegar aðstæður sem að ég hef lent í hérna úti þar sem ég hefði getað gefið allt til að vera með bíl.

Á laugardaginn keypti ég svo mikið að ég gat ekki borið það allt í 25 mín strætóferð alla leiðina heim, ég tók taxa. En áður en ég tók taxa þurfti ég að keyra með innkaupakerruna alla leiðina yfir HUGE bílastæði yfir í rúmfatalagerinn og kaupa smá meira dót og svo aftur yfir bílastæðið í taxa röðina. Námsmaðurinn með risa innkaupakerru trefil húfu og vetlinga. Vá og þau skipti þar sem að ég hef komið rennandi blautur í skólann eða heim.
Svo í gær ákvað ég að kaupa kúst og eitthvað smá meira dót á leiðinni úr skólanum. Neinei það er nú meira en að segja það að fara heim á há annar tíma í strætó með kústskaft og 2 poka og skólatöskuna hangandi utan á mér. Hvað þá að fara eftir skóla í dag og kaupa svona þvottagrind og mottu og þurfa að reiða hjólið því að ég gat ekki haldið á því meðan ég var að hjóla. Úff.. fæ þó plús fyrir að vera ekki latur og taka leigubíl í hvert skipti :P
Mér lýður svoldið eins og ég sé 16 ára pjakkur sem er ekki kominn með bílpróf og þurfi að taka strætó út um allt eða hjóla... hehe soldið stökk aftur á bak miðað við það sem maður er vanur heima.

En núna eru aðeins tæpir 23 dagar þangað til að ég kem heim aftur :D þetta verður svakalega fljótt að líða og ég er varla að trúa því að ég sé næstum því búinn að vera hérna úti í heila önn. Að þessir rúmir 3 mánuðir séu að verða búnir, ótrúlegt Laughing

Jæja ég ætla að henda í þvottavél svona að því að ég er nú loksins kominn með grind til að þurrka þvottinn (sem getur ekki beðið eftir því að láta þvo sig). Er víst búinn að panta tíma í notkun á þvottavélinni kl 17.30 á netinu, sem er helvíti sniðugt þegar maður er að nota sameiginlegt þvottahús.

Farið vel með ykkur í kuldanum og myrkrinu, það er meirisegja farið að snjóa smá hérna í DK.

Bestu kveðjur heim!
Jón Ingi Bergsteinsson

Myndir

23. nóvember 2008 klukkan 18:24
Tékkið á nýju myndunum sem ég var að setja inn Laughing
Jón Ingi Bergsteinsson

LOKSINS

21. nóvember 2008 klukkan 20:35
Ég er fluttur inn í íbúðina okkar.... og hversu ææðislegt er það?! Jú ALVEG GEGGJAÐ :D
Fékk Gústa til að hjálpa mér að flytja, fór og leigði litla kerru aftan á bílinn hans og náðum í svefn-hornsófa sem að ég mun sofa í þangað til að Laufey kemur. :) Svo komum við með „allt" dótið sem að ég var búinn að pakka niður sem komst fyrir í 2 töskum og 3 kössum. Frekar nett. Nýtti vakúm pakkana sem að ég keypti í rúmfatalagernum vel í þetta. Alger snilld þessir pokar.
Ásdís og Gunni kærasti hennar gáfu mér svo litla gamla sjónvarpið þeirra svo að mér leiðist ekki heldur...alveg æðislegt :D
Svo er bara að fara í Bilka á morgunn og kaupa allt það nauðsynlegasta til að geta lifað hér eins og manneskja það sem eftir er af þessari önn, hehe.

Ætla að kalla þetta gott. Á mjög erfitt með að haldast inn á netinu eins og er. Er að sníkja net af einhverjum þráðlausum punkti hjá nágrannanum sem er ekki að virka nógu vel. Fæ vonandi net á morgunn eða strax á mánudaginn.
Ætla svo að senda inn fleirri myndir af tómu íbúðinni okkar þegar ég get :P

Hilsen og góða helgi!!! :D
Jón Ingi Bergsteinsson

Frekar sáttur!

17. nóvember 2008 klukkan 14:30
Úff það eru ekki til orð yfir það hvað mér er létt!

Ég gekk frá restinni af íbúðinni í dag og þetta er LOKSINS komið í gegn. Get sótt lyklana þessvegna á morgunn og flutt inn núna í vikunni Laughing
Þetta er búið að vera eitt risa peninga vandræði að redda þessu öllu sambandi við íbúðina. En það er komið núna!

Shit sko að geta farið inn í mína eigin íbúð þar sem að ekkert annað ókunnugt fólk er verður æðislegt!!

Annars gengur skólinn sinn vanagang hérna... hitti hópinn og kennarana í morgunn til að halda smá inngangs-kynningu á verkefninu okkar sem við eigum að skila í des. Til að sýna hvar við stöndum eins og er og hvað við getum gert meira til að gera þessa report góða. Ég talaði náttúrulega á ensku þegar við vorum með powerpoint slide showið okkar. En svo reyndi ég nú að tala smá dönsku meðan við vorum að svara spurningum frá kennurunum og hinum nemendunum. En annars héllt ég bara kjafti, náði ekki að skilja helminginn af því sem þau sögðu...Surprised

Það sem við erum að vinna að er verkefni sem kallast MTV rapport, eða medecinsk teknologivurdering. Þetta er nafn á skýrslum sem eru skrifaðar þegar flytja á inn nýja tækni inn í heilbrigðiskerfi eins og í danmörku. Þetta skýrsluform er notað í flestum löndum þegar ný lyf eða tækni er influtt í kerfið.
Það er semsagt verið að kenna okkur að búa til svona skýrslu og við áttum að finna tækni sem að er ekki endilega til staðar í Danmörku og skrifa svona MTV rapport um hana, eins og við værum sjálf verkfræðingar að reyna að koma hugmynd okkar inn í heilbrigðiskerfið. Við völdum þessa skemmtilegu og einföldu "aðgerð" til að laga brjósklos. Sem er bæði ódýrari og effektískari en aðrar stórar aðgerðir við brjósklosi. Sem eru bæði dýrari og hafa ekki reynst nærrum því eins vel og þessi (PLDD).

Svo vil ég minna ykkur á að brosa eins og ég núna
Laughing mamma og pabbi eru búin að vera rosalega mikið í því að hressa mig við síðustu vikurnar út af öllu þessu veseni með íbúðina og pabbi minnti mig á þetta lag um daginn.... veðja að það fær ykkur til að hugsa smá jákvætt allavega í þessar 3 mínútur sem það er að spilast Wink Munið að vera jákvæð!


Ætlaði bara aðeins að henda inn smá bloggi um íbúðina og svona að því að ég er svo sáttur :D halda ykkur smá posted. Ætli ég bloggi ekki bara næst þegar ég verð kominn í nýju íbúðina. :D



Hilsen....

Jón Ingi Bergsteinsson

Statusseminar í verkefninu í nćstu viku

12. nóvember 2008 klukkan 10:08
Ouch, svaf yfir mig í morgunn... Ég á svo erfitt með að vakna hérna úti að það er ekki eðlilegt. Líka pirrandi að hugsa til þess ef ég vakna seinna en ég ætlaði mér að þegar ég er búinn að skófla í mig einhverju múslíi að þá eigi ég eftir að hjóla í skólann í tæpar 15 mínútur. Að ég geti ekki bara sest upp í bílinn og keyrt....Laughing
Held að ég sé búinn að borða meira af rúgbrauðu frá því að ég kom hérna út en ég hef gert alla mína litlu ævi heima á Íslandi og meirisegja með KÆFU...vá ég bjóst aldrei við því að éta rúgbrauð með kæfu...hef nær aldrei borðað það heima. Haha en kæfan hérna fæst með bacon bragði, svo það gerir hana bara helvíti fína. Laughing Man eftir því þegar ég var heima hjá Ingólf Davíð einu sinni og fékk brauð með kæfu og píndi það ofan í mig bara til að vera kurteis... eftir það hef ég nær aldrei étið hana... en viti menn maður er bara byrjaður að þorskast aðeins hérna úti.
Hvítt brauð sést nær ekki á þessu heimili sem ég bý á núna, sem er kannski gott, maður fitnar allavega ekki á meðan....eða hvað.
Annars er ég nú að berjast við að borða eins mikið og ég get, er að sleppa allt of mörgum máltíðum út yfir miðjan daginn alveg óvart. Stundum borða ég bara hádegismat og einn kvöldmat yfir daginn, ekki gott... sérstaklega á virkum dögum. Get ekki farið að horast niður hérna eftir að hafa byggt upp allann þennan massa sem ég hef... haha
Tongue out

Heyriði nýjustu fréttir.... Bettina sem á herbergið sem ég gisti í birtist bara heima í fyrradag. Hafði ekki hugmynd um að hún væri að koma heim strax því að hún er búinn að vera segja við mig að ég geti verið alveg þangað til 1. des hérna. En svo birtist hún bara og sagðist hafa komið heim á sunnudaginn og ætlaði bara að gista inni hjá Kristinu sem að býr með mér þangað til að ég færi.... vá engin pressa sko. Frekar óþægilegt að vera í herberginu hennar núna þegar hún er líka heima, þar sem að hún er með helling af dóti undir rúminu og í kommóðu sem að ég er ekki að nota inn í herberginu. Hún þarf líklegast að komast öðru hvoru í þetta dót. Svo að núna er ég orðinn enn þreyttari á því að bíða eftir því að fá lykilinn af íbúðinni. Vonandi fæ ég hann í næstu viku.
Þetta var nefnilega svoldið fyndið, ég var bara eitthvað að reyna læra á mánudagskvöldið og Kristina var búinn að vera inn í eldhúsi að baka frá því að ég kom heim um hádegið, einhverjar bollur og muffins með svaka súkkulaði og dóti, danir eru alltaf að baka. Ég var að pæla í því afhverju hún væri eiginlega að gera þetta. Svo kem ég fram og þá standa þær að faðmast og þessi þvílíku stelpu öskur... djísus... snéri bara frá og fór inn í herbergi. Svo kemur hún eitthvað og heilsar upp á mig, hef aldrei hitt hana bara tala við hana í síma og í gegnum mail. Segir eitthvað hæ gaman að sjá þig og blablabla, já þú getur verið hér þangað til 1. des ég verð bara hjá Kristinu....
Foot in mouth great yeees ok og ég sem var að borga þína leigu fyrir nóvember...svo birtist hún bara. Eins gott að ég fái hluta af henni endurgreidda þegar ég flyt út, þarf að ræða það við hana...Yell

Jakob sem er að flytja út úr íbúðinni sem að við fáum á að skila henni á laugardaginn full málaðri og hann er að verða búinn að flytja svo það eina sem ég býð eftir er að fá bréf frá bankanum heima um að allt sé tipp topp og þá get ég farið inn.

Ætla að láta eina mynd fylgja með sem er frá "afmælis veislunni" minni sem að kristina og Nikolaj héldu fyrir mig 19. sept. Kenndu mér að búa til sushi sem er b.t.w. eitt af því besta sem ég fæ.
Versluðum allt í það og fengum okkur Sake og hvítvín með. Já og stóru flöskurnar þarna með rauðu töppunum eru sojasósur....haha dugir í svona ár.
Sushi
Enough for today
Hilsen....


Jón Ingi Bergsteinsson

Skíta veđur

10. nóvember 2008 klukkan 09:04
Úff vaknaði í morgunn 8.15.... átti að mæta 9.00 til að hitta hópinn minn í skólanum. Leit út um gluggann, og nei, glætan að ég sé að fara hjóla í skólann, nei takk! Þvílík öskrandi grenjandi skíta rignin og enginn smá vindur. Hélt að gluggarnir í herberginu væru að springa þegar ég vaknaði fyrst kl hálf 6 í morgunn.
Minnti mig svolítið á Ísland... Laughing þannig að ég tók strætó...sjúklega fínt að chilla aðeins í 20 mínútur áður en maður mætir í skólann.

Talandi um veður... svona að því að ég hjóla í skólan á hverjum degi þá ákvað ég um daginn eftir að ég var búinn í skólanum að kíkja við í H&M, það var daginn sem að puttarnir á mér og eyrun voru við það að detta af mér þegar ég mætti í skólann um morguninn.Surprised Keypti mér vettlinga, húfu og heita inniskó (Það er ekki búandi í þessum húsum þegar maður er bara á sokkunum, sökum kulda!) á spottprís!
Ég hef ekki notað húfu eða vettlinga í mörg ár. Þegar ég setti húfuna á mig um daginn í fyrsta skipti fékk ég algjört flashback. Minnti mig á 6. bekk í grunnskóla þegar maður klæddi sig ekki nærbuxurnar án þess að vera með húfu á hausnum... ah good times.

Hópurinn minn er kominn með reglu! 50 aura fyrir hverja mínútu sem maður mætir of seint, eða 50 aurar fyrir hverja mínútu sem líður frá þeim tíma sem maður sagðist ætla að mæta... þessir 50 aurar fara svo í púkk fyrir kökum.... what the fokk? Nú er eins gott fyrir íslendinginn að mæta á réttum tíma svo ég verði nú ekki gjaldþrota hérna úti.
Krakkarnir eru rosalega mikið fyrir kökur. Þau mæta yfirleitt með köku 1 sinni í viku fyrir alla í hópnum. Ég hef nú reyndar bara gert það einu sinni, daginn sem ég átti afmæli þá keypti ég köku og kókómjólk (sem er b.t.w. ekkert í líkingu við íslensku kókómjólkina, enda heitir hún MATHILDUR, hvað er málið með nafnið?).

Ég gerði svosem ekki neitt um helgina, kíkti á föstudaginn aðeins niðrí bæ með krökkum úr bekknum á þessa Tuborg julefest þar sem bjórinn flæddi á götunum, elska Tuborg-juleøl...Tongue out annars er ég bara að reyna skrifa í þessu blessaða hópaverkefni. Kominn með hálfa síðu á dönsku en 1 og hálfa á íslensku. Er enn að reyna gera upp við mig hvort ég eigi að reyna að skrifa bara beint á dönsku eða þýða yfir. Ég fæ bara alltaf ritstíflu þegar ég ætla að skrifa á dönsku, það bara kemur ekkert út úr mér um efnið, ætli það sé ekki bara vegna þess að ég er óvanur því að hugsa á dönskunni... það hlýtur að koma.

Ætla að henda inn einu video af verkefni sem við unnum að hérna í skólanum þar sem við vorum að stilla og forrita lítinn lego hjólastól sem við stýrðum með vöðvasamdráttum. Tengdum elektróður við mism. vöðvahópa og keyrðum hann svo í gegnum þrautabraut. Þetta var verkefni sem við unnum að í 2 daga og slúttuðum svo á föstudegi með því að keyra þessa braut. Ég fékk heiðurinn af því að keyra hjólastólinn þar sem ég stýrði honum með puttunum á hægri og vinstri hendi. Vinstri hendin var fyrir vinstra dekkið og hægri fyrir hægra dekkið... svo þegar ég kreppti báðar hendurnar þá keyrði hann beint áfram. Virkaði svona svipað eins og árabátur, til að beygja þurfti bara að kreppa aðra hendina. Ég var með næst besta tímann í brautinni og hópurinn minn lennti semsagt í 2. sæti.. Laughing
Vöðvarnir voru tengdir við tölvuforrit sem var svo tengt þráðlaust við hjólastólinn.
Þetta er tækni sem verið er að hanna fyrir fólk sem er mjög lamað og á erfitt með að stýra hjólastól. Það er strákur í master í heilbrigðisverkfræði í skólanum sem er kominn vel á leið með að hanna þetta kerfi en hann er reyndar ekki að nota vöðvasamdrætti til að stýra þessu heldur tunguna. Góm sem maður setur upp í sig og svo stýrir maður með tungunni, ótrúlega sniðugt, sá á eftir að hala inn peningum!
Svo að fólk sem er kannski lamað neðan frá hálsi getur keyrt stólinn sinn léttilega.
Þess má geta að strákurinn sem stýrði stólnum í hópnum sem að vann. Keyrði hann með brosvöðvunum í andlitinu....var frekar spasstískur þegar hann var að keyra hann.

 

Til hamingju með vinnuvikuna.....


Jón Ingi Bergsteinsson

Ţetta er allt ađ koma!

06. nóvember 2008 klukkan 21:36
Fjúff, var að klára að hlaupa. Mér er farið að líka bara helvíti vel við að fara út og hlaupa, finn það alltaf meir og meir því oftar sem ég kíki út. Æðislegt að hlaupa hérna, þó þetta sé inn í borg, þá líður mér svona soldið eins og ég sé að hlaupa í Borgarnesi eða eitthvað... (ekkert skot á Gígí frænku bara viðlíking Wink ) ekki mikið af stórum húsum eða huge götum eins og er stundum heima, bara soldil "sveitaborg".
Það er allavega ein góð brekka hérna í borginni sem ég hef séð og það er ákkúrat þar sem við erum að fara flytja, hérna rétt hjá. Búinn að vera æfa mig í að hlaupa upp og niður hana svona in case ég þyrfti á því að halda í framtiðinni, you'll never know Tongue out

Vaknaði ágætlega snemma í morgunn, þarf aldrei að mæta snemma í skólann á fimmtudögum eða föstudögum eiginlega það sem eftir er því ég er ekki í stærðfræði... Anyway vaknaði og fór með leigusamning niður í leigudæmið og skrifaði undir, fór á pósthúsið með afrit af honum og skrifaði þar líka undir einhverja breytingu á heimilisfangi. Fór svo niður í kommunu (kommune) og skráði flutning þar, og skrifaði undir...sííííðan þurfti ég að fara niðrí skóla og prenta út fleiri gögn og fá konu til að skrifa undir, fara aftur niðrí kommunu skila gögnum úr skólanum og í leigudæmið aaaaaað skila gögnum líka úr skólanum og vá þetta var pirrandi morgunn. Ánægður að hafa ákveðið að fara hjólandi... hefði ekki nennt að labba þetta fram og til baka.

Er ennþá að bíða eftir því að fá þennan styrk lagðan inn á mig. Fékk loksins peninginn minn frá ísland í morgunn til að borga leiguna á herberginu sem ég er í, fjúff.

Heyrðu svo á morgun er hinn þekkti J-dagen, sem er alltaf formelgi jólastart dagurinn hérna í DK en þetta er eitthvað sem Tuborg byrjaði á. Málið er að Tuborg-juleøl kemur í búðir á morgunn og auglýsingatrikkið hjá þeim til að fá fólk til að kaupann er að auglýsa þennan dag á hverju ári og minna á að hann (bjórinn) muni byrja snjóa á morgunn (8. nóv). Það eru einhverjir fríir og ódýrir bjórar seldir niðrí bæ í öllum stærstu borgunum og svona einhver hátíð. Er að hugsa um að kíkja, verður örugglega sjúklega flott.

Soldið fyndið að segja frá því úr skólanum, að í þeim hópaverkefnum sem ég hef verið  að taka þátt í. Þá er alltaf einn yfirkennari með hverjum hóp sem aðstoðar hópinn í gegnum verkefnið. Mér lýður stundum eins og ég sé í grunnskóla. Krakkarnir eiga rosalega erfitt meða að taka sjálfstæðar ákvarðanir sambandi við verkefnið án þess að spyrja kennarann að því fyrst. Það er eins og þau séu rosalega óreynd í ritgerðar og skýrsluvinnslu.
Fór að spyrjast fyrir um þetta við einn íslending hérna og hann sagði mér þá frá því að þetta væri bara svona hérna í Danmörku út að því að menntaskólarnir eru svo gamaldags. Þeir eru bara 3 ár (held ég) eins og í Bretlandi og krakkarnir eru bara eins og í framhaldsgrunnskóla. Það eru bara örfáir skólar hérna í Danmörku sem eru svipaðir og menntaskólarnir heima.
Þau verða alltaf svo skrýtin á svipin þegar ég kem með einhverjar uppástungur við verkefnið eða skýrsluna, alveg :"Ha Jón á þetta að vera svoona? neii er það?" ok spyrjum bara kennarann.... og hvað segir kennarinn? "Já eins og Jón segir..." Cool niicce..

Daníel Marteins sendi mér þetta video á facebook. Ég verð bara að viðurkenna það að ég sprakk úr hlátri við þetta. Prófiði að horfa á þetta án þess að hlæja... skal veðja við ykkur að þið getið það ekki. Ég brást þegar gamli kallinn kom HAHA alger snilld Laughing

 

Daginn sem að ég byrja að hlæja eins og strákurinn með headphonin, þá meigiði drepa mig....

Hilsen... og góða helgi
Jón Ingi Bergsteinsson